by Herdís Þorgeirsdóttir | 19.06.2014 | Mannréttindi & pólitík
Enginn af rithöfundum Viktoríutímans þekkti eins kjör fátækra í borgum og Charles Dickens. Hann bjó á Doughtystræti í Lundúnum og ráfaði oft um um götur borgarinnar að næturlagi. Þar hafa orðið til fyrirmyndir að mörgum af hans helstu sögupersónum. Sem barn vann hann í verksmiðju þegar foreldrar hans voru í skuldafangelsi. Síðar stofnaði Dickens heimili fyrir fátækar konur sem áttu hvergi höfði sínu að halla. Þar var hann allt í öllu, útvegaði það sem þær þurftu.
Dagur sem kenndur er við kvenréttindi er merkingarlaus ef baráttumálin eru ekki í tengslum við kjarna vandans, vaxandi misskiptingu og aukna fátækt; kvenna, barna og karla.
by Herdís Þorgeirsdóttir | 30.05.2014 | Almanak
Var í boði Stofnunar rússneskra stjórnvalda um lagasetningu og samanburðarlögfræði á ráðstefnu í Moskvu 29. og 30. maí n.k. Var með fyrirlestur og tók þátt í panel-umræðum með Sergey Naryshkin, forseta rússneska þingsins og Olgu Golodec, varaforsætisráðherra Rússlands. Á myndinni ásamt Olgu Golodec og Gerard Marcou, prófessor í lögum við Sorbonne í París.

by Herdís Þorgeirsdóttir | 27.05.2014 | Mannréttindi & pólitík
Boðskapur Frans frá Assisi á erindi við nútímann. Hann beindi sjónum að þeim fátæku og kallaði eftir félagslegu réttlæti. Þau vandamál sem við blöstu á hans tíma eru enn við lýði: styrjaldir, fátækt, spilling valdastétta, félagsleg útskúfun og aukið bil milli allsnægta og örbirgðar.
Frans frá Assisi tilheyrði þeim fátækustu. Hann vann sem daglaunamaður. Hann bað engan um fé og lét aldrei söfnunarbauk ganga.
Boðskapur hans var einfaldur: Græðgi veldur þjáningu bæði hjá fórnarlömbum sem sökudólgum.
Sinnuleysi þeirra sem stöðugt sanka að sér kemur í bakið á þeim sjálfum.
Græðgi er tortímandi afl; siðferðilega, félagslega og andlega.
Frans frá Assisi leit ekki upp til valdamanna. Hann fór fótgangandi til Rómar. Þegar hann kom í Vatíkanið og upplifði spillinguna þar með eigin augum var hann hávær í gagnrýni sinni á græðgina, auðsöfnunina, valdafíknina og innantóma tilvist. Páfinn, Innocensíus III., varð hneykslaður á því hvernig þetta fátæka, auma mannkerti leyfði sér að segja að kirkjan væri í andstöðu við kristnina.
Það eru ýmsir tortryggnir í garð núverandi páfa sem hefur tekið Frans frá Assisi sér til fyririrmyndar og segja hann lýðskrumara. Enginn forvera hans á páfastóli hefur þorað að taka upp nafnið Frans. Páfinn veit að með því að taka upp nafn Frans frá Assisi, sem var félagslegt “drop-out” á 13. öld, er hann að kalla eftir pólitískum áherslum á aukið réttlæti. Frans frá Assisi var sonur auðugs silkikaupmanns sem lifði í vellystingum praktuglega uns hann venti sínu kvæði í kross, 24 ára gamall, yfirgaf fjölskyldu, auð og frama.
Páfinn í Róm hefur hent á haugana sérsmíðuðu rauðu páfaskónum, gylltu skikkjunum og bróderaða fatnaðinum. Hann er að reyna að vekja athygli á því sem skiptir máli.
Datt þetta í hug nú í innantómu fjargviðri í aðdraganda kosninga. Það er óneitanlega svolítið skondið þegar Páfinn í Róm er orðinn eftirtektarverðari fyrir skoðanir en flestir frambjóðendur og fylgismenn þeirra.
by Herdís Þorgeirsdóttir | 15.05.2014 | Almanak
Vinnufundur í Evrópsku lagaakademíunni (European Academy of Law/ ERA) í Trier, 17. maí. Evrópska lagaakademían er ein virtasta stofnun á sviði Evrópuréttar í Evrópu. Á vegum ERA eru haldin námskeið fyrir dómara, embættismenn, lögmenn og aðra sem þurfa á þekkingu á sviði Evrópuréttar að halda. Margir íslenskir embættismenn hafa sótt námskeið í ERA en stofnunin er staðsett í Trier í Þýskalandi. ERA er styrkt af Evrópusambandinu og aðildarríkjum þess. Herdís hefur setið í stjórn ERA (Board of Trustees) frá 2012.

