by Herdís Þorgeirsdóttir | 20.07.2010 | ALMANAK
Nýlega kom út Ragnarsbók, fræðirit til heiðurs Ragnari Aðalsteinssyni hæstaréttarlögmanni. Í tilefni af útgáfu bókarinnar var móttaka haldin í Þjóðmenningarhúsinu. Nokkrir höfunda bókarinnar og fjöldi annarra boðsgesta voru viðstaddir athöfnina. Grein Herdísar Þorgeirsdóttur í bókinni: Farsi og harmleikur: tjáningarfrelsi og þöggun í ljósi hrunsins. (Mynd: Hjörtur Torfason, Herdís Þorgeirsdóttir, Páll Hreinsson).
by Herdís Þorgeirsdóttir | 19.07.2010 | ALMANAK
Sjá umfjöllun um löggjöf um kynjakvóta í Nordic Labour Journal hér.
by Herdís Þorgeirsdóttir | 4.06.2010 | ALMANAK
Árleg ráðstefna Evrópusamtaka kvenlögfræðinga var haldin í Brussel. Þema ráðstefnunnar var um lög og stjórnmál í samfélögum á krossgötum. Sjá umfjöllun hér.
Herman van Rompuy, forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins, var aðalræðumaður. (Sjá myndir sem eru birtar á heimasíðu hans hér) Sjá ræðu van Rompuy hér.
Hér er ræðan sem Herdís flutti við opnun ráðstefnunnar.
Welcoming address by Herdís Thorgeirsdóttir, President of the European Women Lawyers’ Association at EWLA’s 10th Anniversary Congress in Brussels on 3 June 2010 – Law as Politics in societies at crossroads –
President of the European Council, Mr Herman Van Rompuy- Madame Vice President of the European Parliament Diane Wallis,- Distinguished guests, – Colleagues, – Ladies and gentlemen,
Today we celebrate the 10th anniversary of the European Women Lawyers Association. EWLA was founded in Brussels at the turn of the millennium having in particular the aim of promoting women’s equality and fundamental rights.
From its inception EWLA has called on EU Institutions to ensure through legislative action that sex discrimination does not lag behind protection against other types of discrimination; it has called for the balanced participation of women and men on the boards of listed companies. EWLA has in short emphasized the positive obligation imposed on the EC/EU institutions and organs as well as Member States to “actively promote gender equality.
”Women are more than 50% of the population and should be equally visible, influential and responsible as men in political and public life. Much progress has been accomplished in the area of European co-operation and legislation as regards de jure gender equality but reality lags behind. The objectives are clear but we lack results.
EWLA has emphasized that in order to ensure its future and cope with the challenges of globalization, that the social and economic goals on the EU agenda cannot be achieved unless effective measures are taken to improve women’s situation in society at large. With the current economic crisis, the feminization of poverty has increased – two out of every three adults that are poor are women.
Economic considerations and limited resources determine the extent of social measures . . . but there are further shortcomings in the quest for a just society. We are not only faced with economic crises but also crises of confidence; an erosion of trust in financial, social and political institutions is spreading throughout societies like eczema.
The Times They Are a Changin[g ] to quote the Bob Dylan’s lyric from the sixties – “the order is rapidly fadin[g]”.
This is no understatement when coming from Iceland. After the whole banking system collapsed in October 2008, a volcanic eruption has in recent weeks threatened the existence of air travel all over Europe – and just three days ago a political earthquake shock Iceland with a comedy political party winning local elections in Reykjavík. The so-called Best Party took the political establishment by surprise in the Icelandic capital of Reykjavík, securing 6 out of 15 seats in the new city council. One of the issues this party emphasized was a drug-free parliament in 2020 – I have not heard of one MP who is really addicted to drugs – but having this slogan and winning the elections shows that people are ready for change – any kind of change.
The prime minister acknowledged that this could spell the end of the traditional four-party-system in Iceland. Recent opinion polls show that political leaders are looked upon with distrust and contempt.
The situation in Iceland may be quite extreme but we know that unrest is lurking underneath widely in Europe. The Euro has hit a four year low against the dollar; unemployment in the Eurozone has hit a fresh height and across the 27 EU countries there are now 23 million people unemployed. Some say that the key test for market economies, perhaps even for democracies, is how they master growing inequalities triggered by ungoverned globalization and aggravated by the crisis. Womens’ rights around the world are an important indicator to understand global well-being.
Law as politics – in societies at crossroads was the theme chosen for this congress many months ago. We intended to pose a question and designate the need for greater attention to the interplay between these forces – in particular fundamental rights and the market economies and the political atmosphere surrounding these.
How secure are the foundations of modern Europe? Where exactly does our strength to confront the present situation lie.
The sad thing is that the institutions that are supposed to inspire the most trust; the pillars of most societies – the press, political leadership, the corporations are subject to mistrust by the public in many if not most states. We need a dialogue on restoring trust – everywhere – without trust decline is inevitable.
I hereby open EWLAs 10th anniversary congress with the sincere hope that we, European Women Lawyers’ can help contribute to this dialogue of restoring trust; so that right will make might (to quote Abraham Lincoln) – that is exactly what lies at the core of focusing on law as politics.
Annar aðalræðumaður á ráðstefnunni var Diana Wallis, varaforseti Evrópusambandsþingsins (sjá mynd hér fyrir neðan).
by Herdís Þorgeirsdóttir | 28.05.2010 | ALMANAK
Ráðstefnan Tengslanet V – völd til kvenna haldin á Bifröst. Hef skipulagt þessar ráðstefnur frá 2004 og fengið marga þekkta, erlenda fyrirlesara ásamt stórum hópi íslenskra kvenna – úr öllum áttum. Í þetta sinn bauð ég bandaríska metsöluhöfundinum Barbara Ehrenreich að koma til Íslands og vara aðalfyrirlesari á tengslanets-ráðstefnunni. Sjá frétt hér og hér.
Sjá dagskrá hér.
Sjá viðtal við Herdísi hér.
Sjá myndband.
Egill Helgason fékk Barböru Ehrenreich í kjölfarið sem gest í Silfrið.
by Herdís Þorgeirsdóttir | 21.05.2010 | ALMANAK
Bandaríski metsölurithöfundurinn Barbara Ehrenreich verður aðalfyrirlesari á Tengslaneti V-Völd til kvenna ráðstefnunni sem haldin er 27 28 maí næstkomandi. Ehrenreich þykir einn róttækasti samfélagsgagnrýnandi sem nú er á ritvellinum. Bók hennar Nickel and Dimed var í ár valin ein af tíu bestu bókum síðasta áratugar á sviði rannsóknarblaðamennsku af blaðamannstofnun New York háskóla. Annar aðalfyrirlesara nú er Dr. Sigríður Benediktsdóttir, einn höfunda rannsóknarskýrslunnar, en hún mun leggja út af þema ráðstefnunnar um hugrekki í erindi sínu um aðdraganda og eftirmála hrunsins. Um 30 aðrar konur eru með framsögur á ýmsum sviðum.
Barbara Ehrenreich er þekkt fyrir baráttu sína fyrir réttindum kvenna. Hún skrifaði um árabil í MS tímarit Gloriu Steinem; er doktor í líffræði en hefur helgað líf sitt ritstörfum. Hún er höfundur margra bóka og greina; er dálkahöfundur í stórblaðinu New York Times, vinsæll gestur í sjónvarpsþáttum; þykir eitursnjall penni, frábær fyrirlesari og Lundúnablaðið Times hefur kalla hana Jonathan Swift samtímans vegna skarprar sýnar hennar á öfgar og óréttlæti. Þegar hún skrifaði Nickel and Dimed gerðist hún sjálf gengilbeina til að kynnast af eigin raun kjörum þeirra sem komast ekki af í Bandaríkjunum. Hún er sjálf hámenntuð en sagði að láglaunastörf ætluð þeim sem enga færni hafa væru í raun störf sem krefðust oft mikillar einbeitingar, úthalds og þess að fólk sé fljótt að hugsa. Hún segir að þessi láglaunastörf séu ekki eingöngu vanmetin heldur einnig miklu erfiðari um margt auk þess sem þeir sem þeim gegni séu oft að fórna miklu. Þá bendir hún á hvernig atvinnurekendur notfæri sér iðulega eymd þessa fólks. Í nýjustu bók sinni Brightsided sem vakið hefur mikla athygli gagnrýnir hún jákvæðni-iðnaðinn sem gengur út á að láta fólk meðtaka hlutskipti sitt eins og brosandi vélmenni í stað þess að vera raunsæir, gagnrýnir borgarar.
Tengslanetsráðstefnan er fjölsóttasta og vinsælasta ráðstefna sem haldin er í íslensku athafnalífi. Dr. Herdís Þorgeirsdóttir prófessor er stofnandi og skipuleggjandi ráðstefnunnar sem var fyrst haldin 2004. Árið 2008 sló ráðstefnan aðsóknarmet en þá sóttu hana 500 konur. Dagskrá ráðstefnunnar er á heimasíðu Bifrastar www.bifrost.is Þar er einnig hægt að skrá sig og fá upplýsingar um gistingu.
Ráðstefnan hefst með göngu á Grábrók á fimmtudagskvöldinu með þátttöku frambjóðenda allra flokka í sveitarstjórnarkosningunum.
Dagskrána má lesa hér.
Vakin er athygli á að unnt er að skrá sig nú þegar á heimasíðu Bifrastar þar sem einnig er að finna upplýsingar um gistingu í nágrenninu (þ.á.m. eru BSBR sumarbústaðir leigðir út á mjög hagstæðu verði).
Gisting
Skráning er á heimasíðu Bifrastar
by Herdís Þorgeirsdóttir | 17.05.2010 | ALMANAK
17. maí 2010 – 13:11Marta María
Dr. Herdís Þorgeirsdóttir: Það þarf hugrekki til að komast í gegnum mótlæti
Sjá viðtal í Pressunni við Herdísi vegna hinnar árlegu ráðstefnuTengslanets – Völd til kvenna.
Ráðstefnan Tenglanet – völd til kvenna, verður haldin í fimmta sinn dagana 27-28 maí næstkomandi. Frumkvöðull ráðstefnunnar er Dr. Herdís Þorgeirsdóttir prófessor og forseti Evrópusamtaka kvenlögfræðinga. Þegar ráðstefnan var haldin fyrir tveimur árum sló hún met í þátttöku. Í ár verður bandaríski metsölurithöfundurinn, Barbara Ehrenreich, aðalfyrirlesari ráðstefnunnar.
Herdís Þorgeirsdóttir segir það mikinn feng fyrir ráðstefnuna að fá Barböru Ehrenreich til að halda fyrirlestur.
Hún þykir einn áhugaverðasti rithöfundur sem nú er á sjónarsviðinu Bandaríkjunum og á erindi, ekki síst til kvenna, á tímum sem nú. Hún er hámenntaður líffræðingur – doktor í líffræði, en hefur í áranna rás beitt sér fyrir réttindum kvenna. Hún skrifaði í MS tímaritið, er nú fastur dálkahöfundur í stórblaðinu New York Times, fastagestur í vinsælum spjallþáttum og metsölurithöfundur. Bók hennar Nickel and Dimed vakti athygli víða um heim þegar hún kom út fyrir nokkrum árum en þegar hún skrifaði þá bók brá hún sér í hlutverk gengilbeinu og starfaði sem slík til að staðreyna hvernig ekki væri unnt að komast af á launum þeirra. Blaðamannaskóli New Yorkháskóla skipaði bókinni á bekk með áhugaverðustu ritum á sviði rannsóknarblaðamennsku undanfarin tíu ár.
Finnst þér ráðstefnan hafa stuðlað að því að bæta stöðu kvenna í samfélaginu?
Fyrsta tengslanetsráðstefnan var haldin 2004 og vakti strax mikla athygli þar sem hana sóttu konur úr öllu litrófi stjórnmála og starfsstétta. Það gætti sterkra hughrifa samstöðu á fyrstu ráðstefnunni eins og konur áttuðu sig á því að saman gætu þær áorkað meiru en í smáum hópum. Tengslanetið var haldið aftur að ári og alltaf óx þátttakan þar til að það varð sprenging 2008 þegar hátt í fimm hundruð sóttu tengslanetið.
Frægir einstaklingar eins og rithöfundurinn og baráttukonan Germaine Greer hafa verið lykilfyrirlesarar – en það er ekki síst hin fjölbreytta samsetning fyrirlesara úr öllum áttum íslensks samfélags sem skapar dýnamíkina. Umfjöllunarefni í dagskrá er þaulhugsað og fjölbreytt en einnig þannig framsett að það nær til allra. Fyrirlesarar eru með ólíkan bakgrunn – hver talar að meðaltali í 10 mínútur í panel með fjórum til fimm öðrum um ákveðið efni og síðan tekur við næsti panell með annað umfjöllunarefni. Þetta eru snörp umskipti, salurinn hrífst allur með – umræður í kjölfar hvers panels og svigrúm til samræðna inn á milli.
Ráðstefnan sendi frá sér ályktanir (2004, 2005 og 2006) sem höfðu áhrif á löggjöf; afnám launaleyndar á vinnustöðum sem kom inn í jafnréttislögin nr. 10/2008, jafnræði í stjórnum opinberra hlutafélaga 2006 o.s.frv.
Tengslanetsráðstefnan er orðin afl með óbeinum hætti – hún undirstrikar þann kraft sem leiðir af samskiptum sem þessum og hún hefur valdið viðhorfsbreytingu í samfélaginu þótt enn sé langt í land.
Hvað veldur því að konur verða undir í baráttunni við karlana?
Ef ætlunin er að ná fram réttindum kvenna – sem eru sjálfsögð mannréttindi og eru í þágu samfélagsins alls – verða konur að taka þessu hlutverki alvarlega. Ég held að jafnréttishugtakið hafi verið misnotað þannig að stofnanir, fyrirtæki og flokkar telja sig ekki boðlega á markaði nema að skreyta sig með þessu en meina ekki nógu mikið með því. Launamunur kynjanna er viðvarandi og allt of mikill. Konur eiga rétt á sömu launum fyrir sömu störf og þær eiga að koma að ákvarðanatöku og mótun samfélags með jöfnum hætti og karlar.
Í nýskipaðri stjórn David Cameron í Bretlandi í dögun nýrrar aldar, þar sem uppstokkun í hina pólitíska umhverfi er brýn nauðsyn, sitja tuttugu karlar og aðeins fjórar konur. Formenn þriggja stjórnmálaflokka af fjórum hér eru karlar; karlar stýra helstu fjölmiðlum, ríkisútvarpsstjóri er karl, fréttarstjórarnir karlar og stjórnendur pólitískra umræðuþátta karlar; yfirmenn í réttarkerfinu eru karlar; formenn samtaka á vinnumarkaði eru karlar; þeir tróna alls staðar á toppunum í rústunum. Þessir sömu karlar ráða gjarnan hvaða konur fá að koma upp á dekk. Konur eiga iðulega frama sinn í pólitík, viðskiptum og stjórnsýslu undir körlum og þurfa því að spila með á þeirra nótum – síðan er jafnréttisfánanum flaggað en ekkert gerist, hlutur kvenna batnar ekki og samfélagið er jafn illa statt siðferðilega og pólitískt svo ekki sé nú minnst á efnahagsþáttinn.
Hvernig sérðu hlutverk kvenna fyrir þér í samfélaginu eins og það er í dag?
Jafnréttisbarátta kvenna er ekki barátta gegn körlum heldur barátta fyrir konur, börn og betra samfélag, líka í þágu karla. Baráttan fyrir mannréttindum er barátta í þágu allra. Við erum öll í þessu saman eins og sagt er. Ég er ekki fyrir öfgar í þessum efnum; tel að aukin þátttaka kvenna í ákvarðanatöku sé mikilvæg fyrir margra hluta sakir, ekki eingöngu til að styrkja stöðu kvenna til að halda áfram á sömu braut heldur til að rétta hlut kvenna almennt og skapa réttlátara og betra samfélag. Það er margt sem þarf að endurskoða til dæmis fyrirkomulag á vinnumarkaði, umönnun barna, staða aldraðra; rekstur samfélagsins í heild. Ég hef í huga orð Abraham Lincoln‘s „right makes might“ en ekki öfugt . Valdið leiðir ekki til réttlætis en réttlætið getur orðið afl. Jafnréttisbaráttan á að stuðla að réttlátara samfélagi þar sem fólki er ekki mismunað á grundvelli kyns, litarháttar, trúar og pólitískra skoðana – en hvarvetna sem litið er heldur misréttið áfram. Konur eiga ekki að óttast að berjast fyrir jafnrétti eða telja sjálfum sér trú um að það sé ekki til staðar af því að þær sjálfar hafi ekki orðið fyrir því að vera mismunað eða af því að þeim gangi svo vel „í heimi karlanna“ og þetta „kvenna-eitthvað“ sé ekki fyrir þær. Jafnrétti er mál sem snertir okkur allar – okkur öll og ef við sinnum ekki þeirri borgaralegu skyldu að standa vörð um grundvallarréttindi þá bitnar það á okkur síðar. Það tapa allir þegar réttlæti er fyrir borð borið – við vitum það nú.
Heldur þú að efnahagshrunið muni styrkja stöðu kvenna?
Efnahagshrunið markar endalok ákveðins kerfis, ákveðins hugarheims og ákveðins óréttlætis sem viðgekkst í skjóli þöggunar þar sem staðinn var vörður um ákveðna hagsmuni jafnvel undir því yfirskini að verið væri að verja ákveðin gildi, ákveðna hugmyndafræði eins og einstaklingsfrelsi. Það fyrirkomulag sem hefur fengið að þróast hér óáreitt þar til ósköpin dundu yfir á lítið skylt við þau grunngildi sem stjórnskipun okkar, fengin í arf frá frelsisbaráttu 18. aldar, byggir á.
Ef konur koma að endurreisn og uppbyggingu með nýtt gildismat, áherslu á dyggðir, heilindi og réttlæti þá er það til góðs – en eingöngu ef þær koma að sem þjónandi afl í þágu almennings. Spurningin ætti að snúast um það hvort efnahagshrunið skili okkur betra samfélagi. Sterkari staða kvenna leiðir vonandi til þess.
Yfirskrift Tenglanetsins í ár er SINNASKIPTI, SAMSKIPTI & HUGREKKI. Hvers vegna?
Konur þurfa að taka til sinna ráða – ekki bíða eftir molum eða því sem þeim er útdeilt af kerfinu sem stýrt er af körlum. Þær þurfa að vera virkar í sköpun nýs samfélags á rústum þess gamla. Þær þurfa að hafa sjálfstraust til að standa upp og berjast fyrir því sem þær telja rétt og megi betur fara – þær þurfa að gera slíkt á eigin forsendum – og þær þurfa á hver annarri að halda en ekki til að búa til nýja klíku.
Það þarf hugrekki til að fylgja sannfæringu sinni. Hugrekki er forsenda frelsis. Það þarf hugrekki til að komast í gegnum mótlæti og mæta andstöðu. Það krefst hugrekkis að tala hreint út en það þarf líka hugrekki til að hlusta og meðtaka nýjar hugmyndir. Það þarf hugrekki til að sleppa takinu af því sem er að draga mann niður. Þema ráðstefnunnar vísar í borgaralegt hugrekki – að standa gegn óréttlæti – en ekki endilega hugrekkið sem Hemingway skilgreindi sem „reisn í erfiðleikum“ þótt frábær sé.
Hvað drífur þig áfram?
Spái lítið í það. Reyni eins og vonandi flestir að komast yfir þær hindranir sem við blasa hverju sinni. Mamma sagði mér sögu frá því að ég var pínulítil og foreldrar mínir bjuggu í sama húsi og amma og afi. Þá vaknaði ég á undan öðrum og rogaðist með stól að svefnherbergi ömmu og afa. Klifraði upp á stólinn og bankaði síðan. Hún sagði að ég hefði viljað standa jafnfætis þegar þau opnuðu til að bjóða góðan daginn. Hún segir líka að ég hafi verið fljót á fætur þegar ég hrasaði sem barn og haldið áfram. Mér finnst í sjálfu sér ekki merkilegt að spá í það hvað drífur mann áfram þegar maður stendur ekki frammi fyrir alvöru hindrunum eins og að vera í hjólastól eða blindur. Standi ég frammi fyrir einhverjum hindrunum – er þá ekki bara rétt að ná í gamla stólinn og stíga upp á hann og ímynda sér að maður sé jafnhár veggnum sem við blasir.
Í fullri hreinskilni; það eru til hindranir sem enginn fær ráðið við og þá treystir maður guðlegri forsjá. Svo eru til hindranir sem stafa af óvild eða einhverju miður góðu og þær vinna bug á sér sjálfar. Loks eru til hindranir sem maður reisir sjálfur og það þarf kannski mest hugrekki til að yfirstíga þær.