East of My Youth safna fyrir plötu á Karolinafund

East of My Youth safna fyrir plötu á Karolinafund

East of My Youth 26 júní

Við erum að safna fyrir útgáfu á okkar fyrstu plötu sem við stefnum á að gefa út í október á þessu ári. Hljómsveitin hefur verið starfandi í ár og fyrstu tónleikarnir okkar á Airwaves lukkuðust gríðar vel! Núna getum við ekki hætt og bíðum þess full eftirvæntingar að platan okkur líti dagsins ljós.
//
We’re collecting funds to release our first album in the fall of 2015. The band is now one year old and our first concerts at Airwaves were a great success! Now we can’t stop and can’t wait for our first album to be released.

Aðalfundur Feneyjanefndar

Aðalfundur Feneyjanefndar

103. aðalfundur Feneyjanefndar, nefndar Evrópuráðsins um lýðræði með lögum var haldinn dagana 19. – 20. júní. VC 103 plenary betri myndStýrði umræðum um drög að áliti Feneyjanefndar um ný afar umdeild fjölmiðlalög í Ungverjalandi. Dómsmálaráðherra Ungverjalands tók þátt í umræðum. Álitið var einróma samþykkt af nefndinni.

Myndin hér er fyrir neðan er af nokkrum konum á aðalfundi Feneyjanefndar (nefnd Evrópuráðsins um lýðræði með lögum) hinn 19. júní s.l. Talið frá vinstri eru: Wilhelmina Thomassen (varafulltrúi Hollands og fyrrum dómari við Mannréttindadómstól Evrópu), Simona Granata Menghini (varaframkvæmdastjóri nefndarinnar), Sarah Cleveland (fulltrúi Bandaríkjanna, lagaprófessor), Anne Peters (varafulltrúi Þýskalands), Lydie Err (fulltrúi Luxemborgar), Gordana Siljanovska-Davkova (fulltrúi fyrrum júgóslavneska Lýðveldisins Makedóníu), Herdís Þorgeirsdóttir (varaforseti Feneyjanefndar), Hanna Suchocka (fulltrúi Póllands, prófessor og fyrrum forsætisráðherra), Veronika Bilkova (fulltrúi Tékklands) og Amaya Ubeda, lögfræðingur sem starfar hjá Feneyjanefnd í Strassborg.

VC women

Konur á aðalfundi Feneyjanefndar í júni 2015. Frá vinstri Wilhelmina Thomasen varafulltrúi Hollands í nefndinni og fyrrum dómari við Mannréttinadómstól Evrópu; Simona Granata-Menghini aðstoðar framkvæmdastjóri Feneyjanefndar, Sarah Cleveland fulltrúi Bandaríkjanna í Fenyjanefnd; Anne Peters varafulltrúi Þýskalands, Lydie Err, fulltrúi Luxemborgar, Gordana Siljanovska-Davkova fullrúi fyrrum júgóslaveska lýðveldisins Makedóníu; Herdís Þorgeirsdóttir fulltrúi Íslands og varaforseti nefndarinnar, Hanna Suchocka fyrrum forsætisráðherra Póllands og nú prófessor í lögum við háskólann í Gdansk, fulltrúi Póllands í nefndinni; Veronika Bilkova, fulltrúi Tékklands og Amaya Ubeda, starfsmaður Feneyjanefndar í Strassborg.