Rithöfundurinn María Elísabet Bragadóttir troðfyllti Hótel Holt í útgáfuteiti 14. nóvember vegna útkomu nýrrar skáldsögu: Þúsund barna móðir.
Það var greinilegt að mikil eftirvænting hefur ríkt vegna útkomu nýju skáldsögunnar. Eftir þrjá daga í sölu var bókin komin í 3. sæti á metsölulista Eymundsson. Þetta er fyrsta skáldsaga Maríu Elísabetar. Árið 2020 kom út smásagnasafnið Herbergi í öðrum heimi (2020), sem var valið uppgötvun ársins hjá Morgunblaðinu og eitt af þremur bestu skáldverkum ársins að mati íslenskra bóksala. Síðan kom Sápufuglinn (2022), sem hlaut sérstaka viðurkenningu Bókmenntaverðlauna Evrópusambandsins.
Benedikt bókaútgáfa teflir fram nokkrum af sínum bekktustu höfundum fyrir jólin en einnig nýrri röddum. ,,Tengdasonur Íslands” nefnist tíunda skáldsaga Auðar Övu Ólafsdóttur. Þar segir af ungum vísindamanni, Zakaríasi, sem skolar hér á landi í miðri síðari heimsstyrjöldinni. Hann reynist vera blóðafi sögumanns, doktorsnema ímannerfræðu sem býr með 103 ára ömmu sinni. ,,Undir fögru skinni” eftir Brynju Hjálmsdóttur er sögð vera æsispennandi og nýstárleg hrollvekja sem dregur upp hárbeitta svipmynd af nútímafólki andspænis óhaminni náttúru, þar sem margt býr í myrkrinu. Í kynningartexta um ,,Vakir þú?”‘ eftir Jón Kalman Stefánsson segir m.a.: „Barið er aõ dyrum um heita sumarnótt og atlot elskenda trufluð með skelfilegum tíðindum; bróðir konunnar hefur verið myrtur. Fregnin rekur hana og elskhuga hennar af stað í afdrifaríkasta ferðalag veraldarsögunnar, þar sem tekist er á um líf og dauỗa, ást og ofbeldi, og vilja mannsins andspænis guði.
María Elísabet Bragadóttir sendir frá sér skáldsöguna ,,Þúsund barnamóðir”, sem er listilega fléttu og frumleg fjölskyldusaga úr dularfullum samtíma, þar sem sumt fólk fæðist undir berum himni á meðan öðrum er skipað líf í klettunum.”
Tónskáldið Dustin O’Halloran semur tónlist við nýja kvikmynd, sem Ryan Gosling framleiðir. Kvikmyndin Love of your Life var frumsýnd á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Toronto í september og hefur fengið góðar viðtökur. Leikstjóri er Rachel Morrison og handritshöfundur Julia Cox. Með aðalhlutverk fara Margaret Qualley, Aaron Pierre og Patrick Schwarzenegger. Myndina er hægt að sjá á Amazon Prime Video.
Svikasögur er leikrit eftir Maríu Reyndal sem er sýnt á Stóra sviði Borgarleikhússins og gengur fyrir fullu húsi, sýning eftir sýningu. Þetta er tragíkómískt verk sem á sér stað árið 1984 og fjallar um Nönnu, sem er á mörkum þess að vera barn og unglingur. Hún reynir að takast á við hjónaskilnað foreldra sinna og klofning í fjölskyldunni með húmor og hlýju. Hún er milli tveggja elda þegar foreldrar hennar takast á og toga hana í ólíkar áttir. Með hlutverk fara Berglind Alda Ástþórsdóttir, Birna Pétursdóttir, Hákon Jóhannesson, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Mikael Kaaber, Vilhelm Neto og ungleikkonurnar Rebecca Lív Biraghi og Viktoría Dalitso.
Gagnrýnendur hafa hrósað sýningunni fyrir góða úrvinnslu á tilfinningum og áfalli 13 ára stúlku (Nönnu) í kjölfar skilnaðar foreldra. Verkið nær vel til áhorfenda, byrjar á gamansömum nótum en undir niðri er dýpt og sársauki eins og framvindan sýnir.
Katla Margrét sem leikur Guggu í klassískum krumpgalla 9. áratugar er ein fjölhæfasta og skemmtilegasta leikkona landsins.
Gugga er náfrænka Nönnu. Hún sést sjaldan án göngustafa sinna, arkandi frá Logalandinu og út um allar trissur. Gugga sér það sem sína samfélagslegu skyldu að miðla öllu því sem hún heyrir frá manni til manns – og ef hún heyrir eitthvað nægilega krassandi fær hún gæsahúð frá ökkla upp í nára.
Herdís Stefánsdóttir tónskáld hlaut Edduverðlaunin 2026 fyrir tónlistina við kvikmyndina Eldana, sem Ugla Hauksdóttir framleiðir (hér með Herdísi á mynd við athöfnina). Þetta eru önnur Edduverðlaunin sem Herdís hlýtur og hún hefur í þrígang hlotið íslensku tónlistarverðlaunin.
Sápufuglinn eftir Maríu Elísabetu Bragadóttur er kominn út á serbnesku! Bókin er þýdd af Tatjana Latinovic og hér er kynningartextinn sem hún þýddi yfir á íslensku:
Hugsuð sem þríleikur, Sápufuglinn eftir íslenska rithöfundinn Maríu Elísabetu Bragadóttur leiðir lesandann inn í veröld þar sem skilin milli hins hversdagslega og hins fáránlega leysast sífellt upp. Í áhrifaríkum og óvenjulegum frásögnum dregur bókin upp mynd af flóknum mannlegum tengslum, bældum þrám og hljóðlátum en afdrifaríkum augnablikum þegar þær félagslegu grímur sem við klæðumst af nákvæmni falla til jarðar.
María Elísabet leitast ekki við að fanga hina stóru, sögulegu atburði heldur beinir hún athygli sinni að innra landslagi hins venjulega manns — þeim óróa og togstreitu sem leynist í einföldum athöfnum daglegs lífs. Textar hennar eru litaðir af sérkennilegum, hárfínum svörtum húmor en henni tekst með beittum stíl að gera jafnvel ólíklegustu aðstæður trúverðugar og raunsannar.
Verkið, sem hlotið hefur tilnefningu til Bókmenntaverðlauna Evrópusambandsins, er heiðarleg og næm bók um samtímamanninn og þá leið sem hann ratar um eigið innra myrkur. Hún er ætluð lesendum sem leita að ófyrirsjáanlegri prósa, margbrotinni persónusköpun og frásögnum sem sitja eftir löngu eftir að síðasta síða er lesin — því í kjarna sínum er þetta saga um það hvernig maður finnur sína eigin rödd fyrst þegar maður þorir að leyfa henni að hljóma.