Rithöfundurinn María Elísabet Bragadóttir troðfyllti Hótel Holt í útgáfuteiti 14. nóvember vegna útkomu nýrrar skáldsögu: Þúsund barna móðir.

Það var greinilegt að mikil eftirvænting hefur ríkt vegna útkomu nýju skáldsögunnar. Eftir þrjá daga í sölu var bókin komin í 3. sæti á metsölulista Eymundsson.  Þetta er fyrsta skáldsaga Maríu Elísabetar. Árið 2020 kom út smásagnasafnið Herbergi í öðrum heimi (2020), sem var valið uppgötvun ársins hjá Morgunblaðinu og eitt af þremur bestu skáldverkum ársins að mati íslenskra bóksala. Síðan kom Sápufuglinn (2022), sem hlaut sérstaka viðurkenningu Bókmenntaverðlauna Evrópusambandsins.

Sjá hér umfjöllun Vísis um vinsældir Maríu Elísabetar.