Einn fremsti sérfræðingur heims á sviði þjóðaréttar er dr. Guðmundur Alfreðsson. Sérsvið hans í þjóðaréttinum lýtur einkum að alþjóðlegum og svæðisbundnum stofnunum, mannréttindum, frumbyggja- og minnihlutavernd, stjórnskipun, stjórnfestu og þróunarsamvinnu.
Guðmundur er þekktur fyrir störf sín á alþjóðavettvangi þar sem hann hefur starfað um áratugaskeið. Hann er alinn upp í Reykjavík, lauk stúdentsprófi frá MR og lagaprófi frá Háskóla Íslands. Framhaldsnám stundaði hann við New York University og lauk doktorsprófi í alþjóðalögum frá Harvard háskóla1982. Hann starfaði um árabil hjá Sameinuðu Þjóðunum á sviði réttinda minnihlutahópa, bæði í New York og Genf. Guðmundur var skipaður prófessor við lagadeild Lundarháskóla 1995, jafnframt því sem hann var í forsvari fyrir Raoul Wallenberg mannréttindastofnunina í Lundi til ársins 2006. Síðar varð hann prófessor við lagadeild háskólans í Strassborg (2006-2012); gestaprófessor við China University of Political Science and Law í Bejing 2010-2012. Árið 2006 var hann sérstakur „rapporteur“ eða skýrsluhöfundur í minnihlutaréttindum fyrir starfshóp á vegum S.Þ. og fulltrúi í undirnefnd um framgang og vernd mannréttinda (2004-2006). Þá skipuðu grænlensk stjórnvöld Guðmund sem fulltrúa sinn í sérstakri dansk-grænlenskri nefnd um sjálfstjórn. Hann hefur undanfarin ár gegnt stöðu prófessors í heimskautarétti við háskólann á Akureyri. Hann er ritstjóri Yearbook of Polar Law ásamt Timo Koivurova og ritstjóri International Journal on Minority and Group Rights sem og Nordic Journal of International Law. Hann hefur ritstýrt fjölda bóka og er höfundur um 200 fræðigreina og álitsgerða í bókum og fræðiritum og hefur flutt fyrirlestra víða um heim. Sjá t.d. hér og hér.



