Í ársbyrjun 2003 fékk Herdís Þorgeirsdóttir hugmyndina að stofnun Femínistafélags Íslands. Með nafnið í farteskinu hafði hún samband við konur í háskólasamfélaginu og víðar. Hún taldi kominn tíma að gera eitthvað róttækt í jafnréttisbaráttunni, sem virtist í ládeyðu, með stofnun samtaka þar sem tilgangurinn færi ekki á milli mála. Hugmyndin fékk strax góðar viðtökur og nokkrum vikum seinna var haldin ráðstefna í HÍ og ríkissjónvarpið mætti og tók viðtal við Herdísi í kvöldfréttum sjónvarps. Hugmyndin var síðan útfærð í félagsvísindasviði HÍ og endaði með stofnfundi í Miðbæjarskólanum í Reykjavík, föstudagskvöldið 14. mars það ár, að viðstöddu fjölmenni, þ.á m. fyrrverandi forseta Íslands, Vigdísi Finnbogadóttur. Nýlega bárust myndir sem ekki hafa birst áður frá þessum eftirminnilega stofnfundi en þar fluttu ávörp Herdís Þorgeirsdóttir og Gyða Margrét Pétursdóttir ( síðar prófessor í kynjafræði við HÍ). Nafnið á hinu nýstofnaða félagi þótti bæði róttækt og framsækið. Árni Torfason, ljósmyndari Morgunblaðsins á þessum tíma tók myndirnar og eru honum færðar sérstakar þakkir.






