Um Herdísi

Dr. Herdís Þorgeirsdóttir er lögmaður í Reykjavík. Hún hefur víðtæka reynslu, úr akademíu og atvinnulífi, starfar bæði hér og á alþjóðavettvangi. Hún var skipuð prófessor við lagadeild háskólans á Bifröst 2004 og hefur einnig kennt við háskóla erlendis.

Hún hefur reynslu úr háskólasamfélaginu sem fræðimaður og prófessor og er höfundur bóka og greina, sem hafa birst alþjóðlega. Hún rak eigið útgáfufyrirtæki í tæpan áratug og var frumkvöðull á sviði tímaritaútgáfu. Þá hefur hún mikla reynslu af alþjóðlegu samstarfi sem forseti Evrópusamtaka kvenlögfræðinga (EWLA),  mannréttindalögfræðingur fyrir Evrópuráðið, af starfi í lögfræðingateymi á grundvelli EES -samningsins og sem sem fyrirlesari víða um heim. Árið 2012 var hún skipuð í stjórn evrópsku lagaakademíunnar í Trier. Hún átti hugmyndina og skipulagði hinar árlegu tengslanets-ráðstefnur sem voru fjölsóttustu ráðstefnur sem haldnar voru hér á landi um árabil. Herdís er  með doktorspróf frá lagadeild háskólans í Lundi (dr. juris), með M.A.L.D prófi í þjóðarétti og alþjóðastjórnmálum frá Fletcher School of Law and Diplomacy í Boston, með próf í lögfræði og stjórnmálafræði og réttindi til að starfa sem héraðsdómslögmaður.

Ferilskrá:

PRÓFESSOR

Dr. Herdís Þorgeirsdóttir var skipuð prófessor við lagadeild Háskólans á Bifröst 2004 http://www.mbl.is/greinasafn/grein/832180/

Hefur einnig kennt námskeið í mannréttindum erlendis, í Trieste á Ítalíu og við ríkisháskólann í Tbilisi í Georgíu.

HÉRAÐSDÓMSLÖGMAÐUR

Hún starfar sem lögmaður í Reykjavík og er einn af eigendum Vík Lögmannsstofu (VIK LAW), Garðastræti 37.

MANNRÉTTINDI Á ALÞJÓÐAVETTVANGI

Hún gegnir umfangsmiklum störfum fyrir Feneyjarnefnd Evrópuráðsins á sviði mannréttinda http://www.venice.coe.int/site/dynamics/N_Members_ef.asp?L=E&CID=60.

Herdís var kjörin formaður undirnefndar Feneyjarnefndar um mannréttindi (Sub-Commisson on Fundamental Rights) í desember 2011 http://www.venice.coe.int/DOCS/2011/CDL-PV(2011)004SYN-E.ASP

Hún hefur frá 2003 verið í teymi lögfræðinga sem starfa á sviði vinnuréttar- og jafnréttismála fyrir framkvæmdastjórn Evrópusambandsins http://ec.europa.eu/justice/gender-equality/tools/legal-experts/index_en.htm

FORSETI EVRÓPUSAMTAKA KVENLÖGFRÆÐINGA

Herdís var kjörin forseti Evrópusamtaka kvenlögfræðinga 2009 (European Women Lawyers’ Association www.ewla.org) og endurkjörin 2011. Hún er lögfræðingur og með réttindi til að starfa sem héraðsdómslögmaður. Hún er einnig með BA og meistaragráðu í stjórnmálafræði.

DOKTOR Í LÖGUM

Hún er með doktorspróf í lögum (Dr. Jur) frá lagadeild háskólans í Lundi á sviði mannréttinda og stjórnskipunar
http://www.mbl.is/greinasafn/grein/722063/
http://www.jur.lu.se/Quickplace/home/Main.nsf/h_Toc/f17ab01a29d3b896c12574640058b4df/?OpenDocument http://www.lu.se/lund-university-partner-day/faculties/faculty-of-law

M.A.L.D.

Auk þess hefur hún mastersgráðu (MALD) í alþjóðarétti og stjórnmálum frá Fletcher School of Law and Diplomacy í Boston http://fletcher.tufts.edu/MALD.

Hún var gestafræðimaður við Oxford háskóla 1999 http://pcmlp.socleg.ox.ac.uk/

Hún lauk prófum í lögfræði við Háskólann í Reykjavík og stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Hún var í námi í blaðamennsku við College of Journalism í London árið 1976. Áður var hún í einn vetur við háskólanám í Frakklandi.

FRÆÐIMAÐUR OG RITHÖFUNDUR

Herdís er þekktur fræðimaður á sviði tjáningarfrelsis og er höfundur bóka og fræðigreina sem hafa birst alþjóðlega http://www.brill.nl/journalism-worthy-name / http://www.amazon.com/Journalism-Worthy-Name-Affirmative-Convention/dp/9004145281
http://www.ashgate.com/isbn/9780754627821
http://catalogue.nla.gov.au/Record/3916460.  

Rannsóknir hennar hafa í áranna rás beinst að tengslum fjármálavalds, pólitísks valds og fjölmiðlavalds, spillingu og sjálfs-ritskoðun.

Hún var formaður lokadómnefndar íslensku bókmenntaverðlaunanna árin 2005 og 2006, skipuð af Forseta Íslands http://rsi.is/rsi/leitarnidurstodur/nanar/Default.asp?cat_id=8778&ew_0_a_id=170160

ÚTGEFANDI OG RITSTJÓRI

Hún var útgefandi og ritstjóri í áratug og frumkvöðull á sviði tímaritaútgáfu. Hún var fyrsti ritstjóri Mannlífs og stofnandi og útgefandi tímaritsins Heimsmyndar frá 1986-1994

http://mbl.is/greinasafn/grein/39904/
http://mbl.is/greinasafn/grein/104576/

Hún var blaðamaður um árabil. Hóf ung störf á Morgunblaðinu og var í blaðamennsku meðfram háskólanámi. Hún hefur ritað greinar í blöð ug tímarit um stjórnmál og mannréttindi. Hún var í námi í blaðamennsku við College of Journalism í London 1975. Áður var hún einn vetur við háskólanám í Frakklandi.

FRUMKVÖÐULL AÐ TENGSLANETI – VÖLD TIL KVENNA

Hún átti frumkvæði að og skipulagði tengslanets-ráðstefnurnar til að styrkja samstöðu kvenna úr öllum starfsgreinum og vitund þeirra um rétt sinn og mikilvægi í samfélaginu. Tengslanet-Völd til kvenna-ráðstefnurnar voru þær fjölsóttustu sem haldnar voru í íslensku háskóla- og viðskiptalífi um árabil

http://www.mbl.is/greinasafn/grein/1077630 /

http://www.fka.is/?i=2&f=2&o=408 /

 http://www.kvennaslodir.is/frettatengt/nr/268/).

Hún var í tvígang tilnefnd til jafnréttisverðlauna vegna ten gslanets-ráðstefnanna.

ÝMISLEGT ÚR FJÖLMIÐLUM

Um hrunið:

http://www.mbl.is/greinasafn/grein/1265382/

http://silfuregils.eyjan.is/2009/01/25/hrokafullt-upphaf-hrunsins-eda-aldrei-andlega-virk-thjod/

Um icesave í kjölfar fyrsta samnings vor 2009:

http://www.visir.is/ogn-vid-oryggi-og-sjalfstaedi-thjodar—og-framtid-evropsks-samstarfs/article/2009228195908

Um samþjöppun auðs og valds:

http://www.visir.is/vill-raeda-um-ad-setja-thak-a-eignarettinn/article/2011111029820

Um fátækt og kjör barna:

http://www.mbl.is/frettir/innlent/2010/05/29/vernda_tharf_born_gegn_fataekt/

http://mbl.is/greinasafn/grein/1119998/

Um jafnréttismál:

http://www.pressan.is/Frettir/LesaFrett/professor-fyrirtaeki-stofnanir-og-stjornvold-taka-login-ekki-alvarlega-og-thverbrjota-reglur

http://www.pressan.is/VeroldMortuMariu/Lesagrein/dr.-herdis-thorgeirsdottir-thad-tharf-hugrekki-til-ad-komast-i-gegnum-motlaeti

http://www.mbl.is/greinasafn/grein/1077630

http://mbl.is/greinasafn/grein/1008772/

http://www.vb.is/frett/17352/

 http://www.vr.is/index.aspx?groupid=476515&tabid=1889&NewsItemID=9271&ModulesTabsId=4466

NÝLEG ÁLIT FENEYJARNEFNDAR

http://www.venice.coe.int/docs/2011/CDL-AD(2011)036-e.pdf

http://www.venice.coe.int/docs/2011/CDL-AD(2011)026-e.pdf

http://www.venice.coe.int/docs/2010/CDL-AD(2010)053rev-e.pdf

http://www.venice.coe.int/docs/2010/CDL(2010)053-e.asp

http://www.venice.coe.int/docs/2011/CDL-JU(2011)017-e.pdf

http://www.venice.coe.int/docs/2008/CDL(2008)039-e.asp

http://charter97.org/en/news/2011/10/17/43699/

http://eurasialift.wordpress.com/2011/01/12/

http://azerireport.com/index.php?option=com_content&task=view&id=2999