by Herdís Þorgeirsdóttir | 12.06.2016 | Almanak



Meðfylgjandi myndir eru teknar á fundi undirnefndar Feneyjanefndar um grundvallarréttindi sem haldinn var daginn fyrir aðalfund, hinn 9. júní sl. Herdís vann að tveimur mikilvægum álitum sem samþykkt voru af nefndinni; annars vegar áliti um internet-löggjöf í Tyrklandi og hins vegar áliti um lög sem banna starfsemi óæskilegra erlendra og alþjóðlegra stofnana í Rússlandi. Á aðalfundinn mættu aðilar stjórnvalda beggja ofangreindra ríka til viðræðna við nefndina.
http://gosc.pl/doc/3021589.Jest-opinia-Komisji-Weneckiej
by Herdís Þorgeirsdóttir | 10.06.2016 | Almanak
Frá fundi Feneyjanefndar hinn 10. júní þar sem pólskir fjölmiðlar fjölluðu um álit Feneyjanefndar um umdeild lög í Póllandi um æðsta dómstól landsins.
by Herdís Þorgeirsdóttir | 10.06.2016 | Almanak
Á aðalfundi Feneyjanefndar föstudaginn 10. júní ávarpaði dómsmálaráðherra Georgíu, Thea Tsulukiani, fundinn vegna fyrirhugaðs álits á breytingum á lögum um stjórnlagadómstól Georgíu. Sjá frétt hér.

by Herdís Þorgeirsdóttir | 1.06.2016 | Almanak

Within the framework of the joint EU/CoE project “Freedom of Expression and Media Freedom in Azerbaijan” a round table on Defamation took place on 31 May 2016 in Baku. The conference, organised in close cooperation with the Azerbaijani Press Council, aimed to raise awareness on Council of Europe standards and best European practices on defamation and freedom of expression and to give the floor to open discussions on how to improve the national legislation concerning defamation and journalistic practice in Azerbaijan. About 60 representatives of state authorities (Presidential Administration, Milli Majlis, Ombudsman’s Office), academia, media professionals, representatives of civil society and international organisations attended the round table. Mr Patrick Penninckx, Head of Information Society Department of the Council of Europe, and Ms Herdis Thorgeirsdottir, Vice President of the Venice Commission, participated in this event.
by Herdís Þorgeirsdóttir | 13.05.2016 | Almanak
Þingmannasamkunda Evrópuráðsins fór þess á leit við Feneyjanefnd að hún gæti álit sitt á lögum um “óæskileg félagasamtök, erlend og alþjóðleg” sem Duman, rússneska þingið samþykkti hinn 19. maí 2015 (Federal Law No. 129-F3 on Amending Certain Legislative Acts of the Russian Federation). Af þessu tilefni fóru sérfræðingar á vegum nefndarinnar til Moskvu og áttu fundi með þingmönnum, utanríkisráðuneyti, innanríkisráðuneyti, ríkissaksóknara, umboðsmanni mannréttinda sem og fulltrúum frá hinu borgaralega samfélagi, dagana 10. og 11. maí 2016.
Drög að áliti verða lögð fyrir Feneyjanefndina á næsta almenna fundi hennar hinn 10-11. júní n.k.