Á nýafstöðnum aðalfundi Feneyjanefndar var Herdís Kjerulf Þorgeirsdóttir kjörin fulltrúi nefndarinnar í í Nefnd um Lýðræðislegar Kosningar (Council for Democratic Elections, CDE), sem var komið á fót í kjölfar ályktunar Evrópuráðsþingsins þar sem kallað var eftir því að samdar yrðu reglur um góða framkvæmd kosninga (Code of Good Practice in Electoral Matters).

Nefndin er eina þríhliða stofnun Evrópuráðsins og er skipuð fulltrúum Feneyjanefndarinnar, Evrópuráðsþingsins og þings sveitar- og héraðsstjórna Evrópuráðsins. Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu (ÖSE), í gegnum skrifstofu sína um lýðræðislegar stofnanir og mannréttindi (ODIHR), tekur reglulega þátt í störfum nefndarinnar.

Nefndin fjallar um allar álitsgerðir  á sviði kosninga og stjórnmálaflokka, svo sem reglur um góða framkvæmd og leiðbeinandi meginreglur, áður en slíkt er lagt fyrir Feneyjanefndina til samþykktar.

Markmið nefndarinnar er að sameina lögfræðilega sérþekkingu Feneyjanefndarinnar og pólitíska reynslu Evrópuráðsþingsins og þings sveitar- og héraðsstjórna á einum vettvangi. Með því stuðlar nefndin að sameiginlegum evrópskum gildum og þeim grundvallarreglum sem mynda evrópska kosningahefð.

Meðfylgjandi mynd er tekin af vinnuhópi Feneyjanefndar sem um þessar mundir skoðar erlenda íhlutun í kosningum en þar situr Herdís einnig ásamt félögum. Myndin er tekin laugardaginn 10. október í vinnuherbergi nefndarinnar í Scuola Grande San Giovanni Evangelista í Feneyjum. Á myndinni eru að auki Eirik Holmøyvik og Regina Kiener ásamt starsfmanni nefndarinnar Taras Pashuk.

Í bakgrunni má sjá líkan af hinum stórkostlega stiga í byggingunni sem er frá 15. öld. Stiginn er 35 metra langur og nær allt að 12 metra hæð og liggur upp í stórbrotinn sal þar sem aðalfundir Feneyjanefndar eru haldnir ársfjórðungslega. Stiginn er hannaður af arkitektinum Mauro Coduzzi frá Bergamo. Þarna sést á teikningunni að hér eru tveir samhliða tröppugangar og eru þeir reistir  á mýrlendi sem lá að nálægu síki. Engar undirstöður höfðu áður verið lagðar á þessum stað. Það var því engu líkara en reisa ætti íburðarmikinn stiga ofan á vatni.