María Elísabet Bragadóttir rithöfundur gerir það ekki endasleppt. Nýverið fékk hún sína fyrstu smásögu birta í einu svalasta menningarriti sem gefið er út í New York: The Baffler. Sagan um Dverginn með eyrað, þýdd af Larissu Kyser, birtist í mars í Baffler sem er leiðandi vettvangur í Bandaríkjunum fyrir hvassa og óhefðbundna stjórnmálagagnrýni, menningarumfjöllun, smásögur, ljóð og myndlist.
er leiðandi vettvangur í Bandaríkjunum fyrir hvassa og óhefðbundna vinstrisinnaða stjórnmálagagnrýni, menningargreiningu, smásögur, ljóð og myndlist. Tímaritið var stofnað árið 1988 af Thomas Frank og Keith White sem „tímaritið sem sljóvgar beittasta oddinn“, og er nú ritstýrt af Matthew Shen Goodman með höfuðstöðvar í New York. Það gefur út fimm prentútgáfur á ári og birtir efni á netinu nánast daglega á virkum dögum.

