Þessar tvær eru snillingar í að búa til handgerð, gómsæt páskaegg með hollu innvolsi, súkkulaðihúðuðum apríkósum, sveskjum og pístassíum. Þær eru samt svolítið ólíkleglegir súkkulaðimeistarar: Elfa Guðmundsdóttir dr. í tannlækningum og Sigurbjörg Ágústsdóttir, rómaður líkamsræktarþjálfai í World Class, Laugum. Elfa er Húsvíkingur og hefur stundað tannlækningar við góðan orðstýr í 32 ár. Sigurbjörg er ættuð frá Vestmanneyjum, menntaður íþróttakennari og topp þjálfari. Báðar framúrskarandi í sínum fögum. Þess má geta að tannlæknastofa Elfu í Lindahverfinu er líkust listaverkagalleríi og því kemur ekki á óvart að hún sé fagurkeri í því sem hún tekur sér fyrir hendur.

