herdis jackie regula caro

Með stjórnarkonum í Evrópusamtökum kvenlögfræðinga í Brussel 2012.

pabbi sjötugur

Pabbi sjötugur og mamma í stuði. Þau voru löngu skilin þarna en létu það ekki stoppa sig í að vera áfram “fjölskylda”. Á myndinni eru systkini mín og Elísabet, dóttir Siggu systur.

Herdís mexíkó laganemar

Með laganemum við háskólann í Mexíkó þar sem ég var með fyrirlestur á ráðstefnu í mars 2016.

Valparaíso, Chile, desember 2015.

Valparaíso, Chile í desember 2015.

Herdís með dögg, mörtu, guðný, önnu

Með samstarfskonum úr forsetaframboðinu 2012. Frá vinstri Marta B. Helgadóttir, Herdís, Anna Laufey Sigurðardóttir, Dögg Pálsdóttir og Guðný Oddsdóttir.

Herdis Tajikistan sept 2015

Á fundi í Tajkistan, haustið 2015. Forseti landsins, Emomali Rahmon fyrir miðju á mynd, var með framsögu. Hann hefur verið við völd frá því 1994, þ. á m. á tímum borgarastyrjaldar þar sem 100 þúsund manns féllu. Hann kleif metorðastigann í gegnum gamla sovéska kerfið og kommúnistaflokkinn. Gífurlega valdamikill.

með pabba

Með systkinum mínum og pabba í hádegisverði á Jómfrúnni rétt áður en hann dó, haustið 2013.

Herdís með mömmu eins árs

Með mömmu fyrstu jólin mín.

herdís hugsi við tölvu á metropol sept 2013

Vinna, kaffi, ferðalög.

Herdís á Laufásvegi

Þarna er ég níu til tíu ára. Myndin er tekin á Laufásvegi hjá ömmu og afa Evu frænku minnar og jafnöldru.

Herdis EWLA 10th congress Brussels

Forseti Evrópusamtaka kvenlögfræðinga 2009-2011 og endurkjörin 2011 til 2013.

Herdís með slæðu

Fannst svo smart að vera með slæðu á ákveðnu tímabili. Hér með mömmu og systkinum. Hef hnýtt slæðu á Siggu systur svo hún væri líka í tískunni.

með gunnar þorgeir nýfæddan

Með Gunnar Þorgeir nýfæddan og yndislega ljósmóður mér við hlið, 15. október 1994. Engar konur finnst manni mikilvægari en ljósmæður.

með pabba á þingvöllum

Með pabba (Þorgeiri Þorsteinssyni lögreglustjóra og sýslumanni 1929-2013) á Þingvöllum.

IMG_9568

Með lífverði forseta Ítalíu. Stjórn  Feneyjanefndar átti fund með forseta landsins, Napolitano sem var að verða níræður í október 2014. Lífvörðurinn er ákaflega hávaxinn enda frá Svartfjallalandi.

Róm 21 og 22 okt 2013 006

Í Róm 2013; vinna við ítalska meiðyrðalöggjöf.

Herdís með Herdísi Stef litla í peysufötum 2

Með frumburðinn minn, Herdísi – nafnið hefur gengið niður marga ættliði allt frá 16. öld.

með mömmu nýfermd

Með mömmu nýfermd. Fór í lagningu eins og allar stelpur þá.

Forsetaframboð 2012

Forsetaframboð 2012. Talaði um peninga í pólitík, mannréttindi og lýðræði. En það þurfti Bernie Sanders til (2016) að fólk færi að hlusta. Hef skrifað, talað og rannsakað tengsl fjármagns við fjölmiðla og pólitík í meira en 20 ár.

164869_1795584778309_7581171_n

Með mömmu, Herdísi Tryggvadóttur og Siggu systur (Sigríður prófessor í heimspeki við HÍ) á Þingvöllum. Við sitjum á leiði Jónasar Hallgrímssonar – skáldsins og náttúruverndarsinnans.

Herdís og Kemal Ataturk lítil

Geng til fundar við ríkissaksóknara í Tyrklandi í janúar 2016 undir vökulu auga Kemal Atatürk, föður allra Tyrkja. Blaðamenn eru miskunnarlaust sóttir til saka fyrir skrif sín um pólitík í Tyrklandi um þessar mundir.

Fjölskyldan í Grænási

Yngsti bróðirinn skírður, Ófeigur Tryggvi í fanginu á mömmu. Sigga með perlufesti í fanginu á pabba; Steini í jakka með bindi og ég ábúðafull elsta systir á 7. ári.

herdís ungur blaðamaður

Ungur blaðamaður á Morgunblaðinu. Hafði stundað nám í blaðamennsku á Fleet Street í London. Fannst ekkert skemmtilegra en að skrifa, skrifa, skrifa.

EWLA President with Mr Herman Van Rompuy President of the European Council

Sem nýkjörin forseti Evrópusamtaka kvenlögfræðinga afhendi ég Herman van Rompuy, forseta leiðtogaráðs Evrópusambandsins, penna eftir að hann flutti ræðu á ársþingi EWLA í Brussel 2010. Hann sagðist hafa vakað alla nóttina við að skrifa ræðuna.

Herdis Ricardo Lewandovski

Með forseta hæstaréttar Brasilíu, Ricardo Levandowski. Hann var á Fletcher School of Law í Boston eins og ég en útskrifaðist áður. Hæstiréttur Brasilíu úrskurðaði haustið 2015 að fjármögnun stórfyrirtækja í kosningum færi gegn stjórnarskrá landsins.

184

Kenndi mannréttindi við lagadeild Ivane Javakhishvili háskólans í Tbilisi haustið 2012.

herdís og barbara ehrenreich

Bauð bandaríska metsöluhöfundinum Barböru Ehrenreich á síðustu tengslanets-ráðstefnuna sem ég stóð fyrir árið 2010. Hún starfaði huldu höfði sem lágt sett þjónustustúlka á ódýrum matsölustað um langt skeið þegar hún skrifaði bók um þá sem minna mega sín.

Í kaffistofu starfsfólks Fríhafnarinnar í Leifsstöð.

Í kaffistofu starfsfólks Fríhafnarinnar í Leifsstöð í kosningabaráttunni 2012.

Mynd sem Jim Smart tók eftir að Herdís stofnaði tímaritið Heimsmynd 1986.

Mynd sem Jim Smart tók eftir að Herdís stofnaði tímaritið Heimsmynd 1986.

Herdís batumi 11 sept 2015

Með framsögu á fundi sem varaforseti Feneyjanefndar. Mér á vinstri hönd er Guido Raimondi, nýkjörinn forseti Mannréttindadómstóls Evrópu.

moskva

Hef unnið í að yfirfara lagasetningu í Rússlandi á sviði mannréttinda. Hér í rigningu á Rauða torginu í september 2013.

herdis1

Var skipuð í stjórn Evrópsku lagaakademíunnar 2012. Hér ásamt annarri stjórnarkonu, Diana Wallis frá Bretlandi.

Untitled-517

Þegar ég var hálfs árs fór ég með foreldrum, móðursystkinum og mökum þeirra að heimsækja föðurforeldrana og fjölskylduna fyrir austan. Myndin er væntanlega tekin af afa Tryggva Ófeigssyni, útgerðamanni en á henni er ég með ömmu Herdísi Ásgeirsdóttur og ömmu Sigríði Þorvarðardóttur Kjerúlf og afa Þorsteini Jónssyni, kaupfélagsstjóra. Þau bjuggu í Hermes á Reyðarfirði. Mikill vinskapur var með öfum mínum.

Kynjakennitölur fyrirtækja verði reglulega birtar

Fyrsta tengslanets-ráðstefnan sem ég skipulagði sem prófessor við lagadeildina á Bifröst 2004. Vinsælasta ráðstefna til valdeflingar fyrir konur, sem haldin var um langt árabil.

23

Í fornu klaustri í fjöllum Georgíu (2012).

Systkinin, Herdís, Sigríður og Ófeigur Tryggvi byrjuðu að stunda sjósund 2008.

Systkinin, Herdís, Sigríður og Ófeigur Tryggvi byrjuðu að stunda sjósund 2008.

Herdís og börnin 2003.

Með Maríu Elísabetu, Herdísi, Hörð Tryggva og Gunnar Þorgeir um það leyti sem ég varði doktorsritgerð mína við lagadeildina í Lundi 2003. Ein með fjóra krakka sem urðu himinlifandi þegar það verk var frá.

herdis germain greer klippt

Bauð Germaine Greer, einni þekktustu kvenréttindakonu heims á tengslanets-ráðstefnu 2006. Hún er beinskeytt með afbrigðum.

herdís í dómssal brosandi

Við lögmannsstörf.

herdís á egilsstöðum

Á ættaróðalinu á Egilsstöðum á fámennum fundi í kosningabaráttunni 2012.