Þann 13. mars 2026 stóð Feneyjanefnd fyrir málþingi til að minnast þess að Japan hefur verið áheyrnarfulltrúi hjá Evrópouráðinu í þrjá áratugi. Viðburðurinn fór fram í húsakynnum Evrópuráðsins í Strasbourg og þar flutti aðalræðu prófessor Masahiro Sogabe, varafulltrúi Japans í Feneyjanefndinni og prófessor við lagadeild Kyoto háskóla, um alþjóðleg mannréttindalög í Japan.

Í framhaldinu beindust umræður að gervigreind og lýðræði, gervigreind og mannréttindum, og gervigreind og réttarríkinu. Herdís Kjerulf Þorgeirsdóttir var með framsögu um gerfigreind og lýðræði. Sjá nánar hér.