103. aðalfundur Feneyjanefndar, nefndar Evrópuráðsins um lýðræði með lögum var haldinn dagana 19. – 20. júní. Stýrði umræðum um drög að áliti Feneyjanefndar um ný afar umdeild fjölmiðlalög í Ungverjalandi. Dómsmálaráðherra Ungverjalands tók þátt í umræðum. Álitið var einróma samþykkt af nefndinni.
Myndin hér er fyrir neðan er af nokkrum konum á aðalfundi Feneyjanefndar (nefnd Evrópuráðsins um lýðræði með lögum) hinn 19. júní s.l. Talið frá vinstri eru: Wilhelmina Thomassen (varafulltrúi Hollands og fyrrum dómari við Mannréttindadómstól Evrópu), Simona Granata Menghini (varaframkvæmdastjóri nefndarinnar), Sarah Cleveland (fulltrúi Bandaríkjanna, lagaprófessor), Anne Peters (varafulltrúi Þýskalands), Lydie Err (fulltrúi Luxemborgar), Gordana Siljanovska-Davkova (fulltrúi fyrrum júgóslavneska Lýðveldisins Makedóníu), Herdís Þorgeirsdóttir (varaforseti Feneyjanefndar), Hanna Suchocka (fulltrúi Póllands, prófessor og fyrrum forsætisráðherra), Veronika Bilkova (fulltrúi Tékklands) og Amaya Ubeda, lögfræðingur sem starfar hjá Feneyjanefnd í Strassborg.