Benjamin Franklin prýðir 100 $ seðilinn í Bandaríkjunum enda einn áhrifamesti einstaklingur 18. aldarinnar (1706 – 1790). Hann var einn af frumkvöðlum bandarískrar stjórnskipunar, tók þátt í að semja stjórnarskrána og leggja drög að Sjálfstæðisyfirlýsingunni.  Hann var fjölfræðingur, rithöfundur, vísindamaður, uppfinningamaður, stjórnmálaskörungur, fyrsti sendiherra Bandaríkjanna í Frakklandi, prentari, útgefandi, póstmeistari og pólitískur heimspekingur. Auk þessa spilaði hann á fiðlu, hörpu og gítar, samdi tónlist, skrifaði metsölubækur og stóð að stofnun borgaralega samtaka auk Háskóla Pensylvaníu. Því skal engan undra að hann hafi skipulagt daga sína vel en hann náði því að verða hálf níræður. Svona leit dagskrá Benjamin Franklin út á blaði:

Hann vaknaði kl. 5, lagði drög að vinnu dagsins, íhugaði og borðaði morgunmat. Vann síðan frá kl. 8 til 12 en þá tók hann sér hádegishlé og leit yfir reikninga. Vann síðan frá kl. 2-6 og spurði sig að kveldi dags hverju hann hefði áorkað til góðs þann daginn.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Sagt er að Benjamin Franklin hafi verið mjög umhugað um líkamlega hreysti enda áttaður á því að heilbrigð sál þrífst best í hraustum líkama. Hann gerði leikfimiæfingar, synti (fann upp “froskalappirnar”), gekk upp og niður siga og lyfti lóðum(!). Þá er hann sagður hafa stundað loftböð, þ.e. setið nakinn við skriftir í upphafi dags.

Franklin lagði einnig til grundvallar lífi sínu og störfum þrettán dyggðir:

  1. Sjálfsagi: Matur og drykkur í hófi.
  2. Þagmælska: Ekki tala til að þóknast öðrum eða sjálfum þér. Forðastu lítilmótlegar samræður.
  3. Skipulagning: Hafðu allt i röð og reglu. Leyfðu hverju verkefni að taka sinn tíma.
  4. Viljastyrkur: Leystu þau verkefni sem þarf og forðastu að mísstíga þig.
  5. Sparsemi: Eyddu engu nema til góðs fyrir aðra eða sjálfan þig; eyddu engu.
  6. Dugnaður: Ekki láta tímann hlaupa frá þér. Vertu alltaf að gera eitthvað sem kemur að gagni. Slepptu öllum óþarfa.
  7. Einlægni: Slepptu særandi atferli. Láttu sakleysi og réttlæti stjórna hugsunum þínum og orðræðu.
  8. Réttlæti: Gerðu ekkert rangt með því að særa aðra eða koma þér hjá þeim skyldum sem þér ber að sinna.
  9. Hófsemi: Forðastu öfgar. Temdu þér að láta ekki gremju yfir misgjörðum ná lengra en þær eiga skilið.
  10. Hreinlæti: Ekki líða óþrifnað, hvorki líkamlegan, í fatnaði eða hýbýlum.
  11. Skírlífi: Stundaðu kynlíf sjaldan og aðeins í þágu heilsu eða barneigna; aldrei þannig að það leiði til sljóleika, veikleika eða skaði þína eigin eða annarra ró eða mannorð.
  12. Rósemi: Láttu smávægileg atriði eða algeng og óhjákvæmileg óhöpp ekki raska ró þinni.
  13. Auðmýkt: Hafðu Jesú og Sókrates sem fyrirmyndir.

Fanklin raðaði dyggðunum niður eftir mikilvægi og reyndi að ná tökum á einni í einu – ekki öllum samtímis. Hann punktaði niður hjá sér í litla bók hvernig honum hefði tekist upp eða mistekist í að ná tökum á dyggðinni að kvöldi dags. Hann byrjaði ekki að reyna við næstu dyggð fyrr en honum hafði tekist að komast hjá mistökum í þeirri sem var verkefnið hverju sinni.

Mottó hans var að ef maður skipulegði sig ekki þá væri maður að leggja drög að því að mistakast. Það er hægt að slá hlutum á frest en tíminn er jafn takmarkaður.

Franklin var ekki fullkominn. Hann hafði sína lesti sem hann barðist við að hemja með allri skipulagningunni. Hann var kvensamur og stóð í framhjáhaldi á Frakklands-árunum sínum. Hann naut þess að borða og drakk oft vín í óhófi, sem leiddi til þess að hann fékk þvagsýrugigt. Hann var bæði stoltur og metnaðargjarn þótt hann vildi taka auðmýkt Jesú og Sókratesi sér til fyrirmyndar. Þótt hann teldi hófsemi mikilvæga þótti honum gaman að skemmta sér og gekk oft langt í þeim efnum.

Hann gerði sér grein fyrir löstum sínum og reyndi þess vegna að setja sér mannbætandi markmið og skipuleggja tíma sinn vel.

Áhugaverður!