17. júní hátíð á kosningamiðstöðinni

17. júní hátíð á kosningamiðstöðinni

Gleði á kosningamiðstöð og hringur í kringum landið.

Við fylgdumst með skrúðgöngunni fara niður  Laugaveginn í dag. Skátarnir og lúðrasveitin standa alltaf fyrir sínu. Katla Margrét, Magnús Diðrik og Ævar ( hljómsveitin Rjómar)  tóku nokkur vel valin lög fyrir utan kosningamiðstöðina í dag.  Guðrún Ásmundsdóttir leikkona flutti ræðu og minntist þeirra tveggja forseta sem hún átti þátt  í að aðstoða þegar á þeirra baráttu stóð: Kristjáns Eldjárns og Vigdísar Finnbogadóttur. Guðrún rifjaði upp hvernig stuðningsmenn Kristjáns fylltust eldmóði þegar einn þeirra sagði þeim frá draumi sínum nokkru fyrir kosningar en sá draumur sýndi Kristján fara niður skíðabrekku og bruna upp aftur. Hún rifjaði einnig upp framboð Vigdísar sem var dáður leikhússtjóri og leikararnir fylgdu henni flestir og urðu afar glaðir þegar hún var kosin.

Margir litu við og þáðu kaffibolla og nýbakaðar vöfflur.  Meðal þeirra sem kíktu við var Anna Einarsdóttir, dóttir Einars Ásmundssonar fyrrum ritstjóra Morgunblaðsins og færði hún frambjóðandanum bókina Jón Forseti Allur? Táknmyndir þjóðhetju frá andliti til samtíðar. Bókin er eftir Pál Björnsson sagnfræðing og kom út 2011. Frambjóðandinn ætlar að lesa bókina á leið sinni vestur á firði sem hefst síðdegis en þá hefst hringferð Herdísar um landið.

Við verðum í stöðugu sambandi við ykkur.

 

Gleðilega þjóðhátíð!

Það verður mikið um að vera á kosningamiðstöðinni á Laugavegi 87 í dag. Hljómsveit Kötlu Margrétar, Rjómar, verður með tónleika sem hefjast kl. 13.00.  Okkar ástsæla leikkona, Guðrún Ásmundsdóttir verður með uppistand. Boðið verður upp á kaffi og nýbakaðar vöfflur með sultu og rjóma.

Allir stuðningsmenn velkomnir.

Herdís sigrar ekki en samt sigurvegari í baráttunni

Herdís sigrar ekki en samt sigurvegari í baráttunni

Screen Shot 2017-05-02 at 08.35.20Sigurbjörn Þorkelsson skrifar undir fyrirsögninni RÚV blekkti vísvitandi: Í viðtalsþætti RÚV um forsetakosningarnar, þar sem allir frambjóðendur mættu, var kynnt skoðanakönnun þar sem frekar mjótt var á mununum á  milli þeirra Ólafs og Þóru. Ólafur með 45% og þóra 39%.  Þóra tjáði sig um þessa könnun eins og sigurvegari. Hún var ánægð með niðurstöðuna. Það sem ekki var sagt, en skiptir höfuðmáli var að skoðanakönnunin var tekin að mestu fyrir þátt með Ólafi, Herdísi og Þóru á Stöð 2,  þar sem Ólafur og Herdís stóðu sig mjög vel, en Þóra ekki. Skoðanakönnun eftir þann þátt sýndi að  57% áhorfenda  töldu Ólaf hafa staðið sig best, en aðeins 19% töldu Þóru standa sig best. Með þessari framsetningu var reynt að koma Þóru aftur inn í leikinn. Það var ófaglegt og heimskulegt af starfsmönnum RÚV.

Þessi vinnubrögð starfsmanna RÚV er þeim mun gangrýniverðari, að einn frambjóðandana hefur Herdís Þorgeirsdóttir hefur hvatt RÚV til þess að láta utanaðkomandi stjórna umfjöllun RÚV um forsetakosningarnar, þar sem Þóra Arnórsdóttir var starfsmaður RÚV. Útvarpstjóri setti málið í aulafarveg, og  einhverjar málpípur gáfu út að ekkert væri við framgögnu RÚV að athuga.

Niðurstaðan í skoðanakönnun nú segir að Ólafur Ragnar hafi 58% fylgi, Þóra hafi 28%, Ari Trausti hafi 8%, Herdís 4%, og þau Andréa og Hannes 1%.

Það er auðvitað ekki líklegt að margt gerist fram að kosningum. Jón Baldvin hefur skipað Jóhönnu að halda sér frá kosningabaráttunni, en bara tenging Þóru við Samfylkinguna hefur skaðað hana. Herdís hefur áunnið sér mikla virðingu, og það hefur Andréa einnig gert.

Ef það væri einhver töggur í Páli Magnússyni setti hann Margréti Marteinsdóttur slakan og mjög hlutdrægan þáttastjórnanda hjá RÚV í veikindaleyfi, til Kanarí ef annað dugar ekki, til þess að halda þá litlu virðingu sem RÚV heldur eftir framgöngu starfsmanna stofnunarinnar.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1Smámynd: Valdimar Samúelsson

Þetta er bagalegt og það ætti að gera opinbera kæru vegna þessa. Ég er ekki samt að skilja vel af hverju herdís kemur ekki betur út í könnunum. Hún er vinsælli en þóra manna á meðal. Spurning hvort það sé einhver maðkur í misunni þ.e. er könnun gerð meðan yngra fólksins en það er einhvað skrítið í kýrhausnum með þóru.

Valdimar Samúelsson, 15.6.2012 kl. 22:06

2Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Valdimar ég held að það verði gerð krafa um uppstokkun á RÚV fyrr en seinna. Ríkisfjölmiðill sem veldur ekki að gæta jafnræðis missir stuðning.

Ég er sammála þér um góða frammistöðu Herdísar. Hún á eftir að bæta við sig. Þó hún sigri ekki, er hún þegar orðinn sigurvegari í þessarri baráttu.

Sigurður Þorsteinsson, 15.6.2012 kl. 22:28

3Smámynd: Gunnlaugur I.

Sæll Sigurður. Þetta er áhugaverður vinkill hjá ér og bara enn eitt sorglegt dæmið um það að þessari stofnun allra landsmanna er ekki treystandi.

Ný stjórnvöld þurfa að hreinsa ærlega til á þessari stofnun. Reka vanhæfan og hrokafullan útvarpsforstjórann og setja nýjar og strangar siða- og hlutleysisreglur um fréttaflutning og fréttamat stofnunarinnar. Þetta er algerlega óboðlegt.

Vanhæfi þeirra hefur berlega komið í ljós í aðalega þremur stórum málum.

1. Umfjöllun um ESB málefni og umsókn okkar þar.

2. ICESAVE málið.

3. Forsetakosningarnar.

Í öllum þessum þremur stóru málum hafa þeir brotið allar hlutleysisreglur gróflega.

Gunnlaugur I., 16.6.2012 kl. 17:12

4Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Sæll Gunnlaugur, er alveg sammála þér með þessa þætti. Ríkisfjölmiðill eins og BBC leggur mikið upp úr því að áhorfendur virði hann fyrir fagmennsku. Innan RÚV virðist lítill sem enginn metanður lengur ríkjandi meðal starfsmanna. Nokkrir öfgasinnar halda að miðilinn eigi að verða áróðurstofnun eigin skoðana. Það þýðir uppstokkun, eða að stofnunin verði lögð niður.

Sigurður Þorsteinsson, 16.6.2012 kl. 18:05

Glæsilegur frambjóðandi á ferð

Glæsilegur frambjóðandi á ferð

herdís 2012Jón Baldur Lorange skrifar: Herdís Þorgeirsdóttir kom vel fyrir í þætti Ríkissjónvarpsins í gærkvöldi. Hér er glæsilegur forsetaframbjóðandi á ferð á allan hátt. Sjónarmið hennar til forsetaembættisins og annarra málefna eru heilbrigð og skynsöm. Hún veit hvað hún syngur. Menntun hennar og reynsla er afgerandi miðað við aðra frambjóðendur. Ef aðstæður væri aðrar hvað varðar forsetakosningarnar að þessu sinni hefði ég örugglega kosið Herdísi sem næsta forseta Íslands. Þeim aðstæðum hef ég lýst áður.

En það koma forsetakosningar eftir þessar forsetakosningar og Herdís getur vel við unað.

ATHUGASEMDIR

1identicon

Stundin er alltaf rétt til að gjöra hið rétta – er það ekki?

http://www.visir.is/kjosum-med-hjartanu/article/2012120619707

Elín Sigurðardóttir 13.6.2012 kl. 08:56

2identicon

Eftir því sem frambjóðendurnir tjá sig meira er að koma skýrar í ljós að það er Herdís sem er mest sannfærandi kosturinn í stöðunni. Fylgi við hana mun smám saman aukast og með því sannfæra hörðustu andstæðinga sitjandi forseta að hún er eini rétti valkosturinn á kjördag. Sjáiði til!

Grímur 13.6.2012 kl. 10:05

3Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sammála hún kom afskaplega vel fyrir, hafði öll svör á reiðum höndum og datt aldrei í gryfjur spyrjenda.  Svo er hún líka afar flott kona.  Mæli með henni næst á eftir Ólafi.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.6.2012 kl. 12:32

4Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Svo er hún alþýðleg,hitti hana í Hámu,en Ólaf svík ég ekki.

Helga Kristjánsdóttir, 13.6.2012 kl. 14:50

5Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Herdís hefur komið afar fersk inn í þessa kosningabaráttu. Þroski hennar og þekking kemur vel fram.

Sigurður Þorsteinsson, 13.6.2012 kl. 22:30

6Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Herdís er flott forsetaefni. Hefur verið sjálfri sér samkvæm, skýrmælt, kraftmikil og fylgin sér. Svo veit maður fyrir víst að það er hún sem er í framboði en ekki makinn, eða staðgengill orlofskonunnar ágætu.

Það má ekki gleyma hinum helmingunum sem eru í framboði á hliðarlínunni.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 14.6.2012 kl. 00:23

7Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jamm það er mikið lagt upp úr blessuðu barninu á þeim vígstöðvum, manni brá eiginlega þegar frambjóðandinn var komin með barnið í fangi, því hingað til hefur það verið á handlegg pabbans á öllum myndum.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.6.2012 kl. 00:29

8identicon

Herdís stóð sig afburðavel í viðtalinu á RÚV-sjónvarpi í gærkvöldi.

Hún mun uppskera … fyrr en síðar.  Það mun Andrea einnig gera.

Þær eru að mínu mati nú þegar orðnir sigurvegarar, á sinn eigin hátt.

Pétur Örn Björnsson 14.6.2012 kl. 00:50