Mjög áhugaverð sýning Þjóðleikhússins Dansandi ljóð byggð á nokkuð mögnuðum ljóðum Gerðar Kristnýjar í leikgerð Eddu Þórarinsdóttur var frumsýnd 18. janúar í Þjóðleikhússkjallaranum.  Í verkinu er sögð ævisaga konu frá fæðingu til fullorðinsára og túlka leikkonurnar Bryndís Petra Bragadóttir, Helga E. Jónsdóttir, Margrét Kristín Sigurðardóttir (Fabúla), Júlía Hannam, Rósa Guðný Þórsdóttir, Sólveig Hauksdóttir, Vilborg Halldórsdóttir og Þórey Sigþórsdóttir,  líf hennar, ástir og örlög í ljóðum, dansi og tónlist, sem Margrét Kristín Sigurðardóttir (Fabúla) hefur  samið og flytur.  Dansandi ljóð er “ljóðasaga” sem Edda Þórarinsdóttir leik- og söngkona hefur samið og byggir hún á ljóðum úr bókum Gerðar Kristnýjar Guðjónsdóttur Ísfrétt, Launkofa, Höggstað og Ströndum. Magnaður flutningur  hjá þessum glæsilegu leikkonum – að túlka með dýpt þessi ljóð.

Búningar og leikgerð eru eftir Helgu Björnsson sem hlaut Grímuna fyrir búninga sína í  Íslandsklukkunni. Danshöfundar eru Ásdís Magnúsdóttir og  Ingibjörg Björnsdóttir.

Verkið var frumsýnt fyrir fullum sal og dúndrandi lófaklappi í lokin. Óhætt að  mæla með þessari sýningu sem er listræn upplifun.

Dauðinn er endapunktur verksins – ljóð Gerðar Kristnýjar  um dauðann:

 

 

 

 

Veisla

Dauðinn er
dama á rauðum skóm

Hún veður
inn í skápa
nær í nýþveginn dúk
og dekkar borð

puntar með postulíni

Dauðinn gefur ekki
þumlung eftir

Hún bræðir
súkkulaðiplötu í potti
og hringir í
vini mína

Hún breytir um rödd
til að blekkja þá
og býður þeim heim

Þeir koma
einn af öðrum
dáist að tertunum
og trakteringunum

og skónum sem
skildir voru eftir