Kynjakvóti í stjórnum fyrirtækja

Varaði við ástandinu fyrir tveimur árum síðan

Steinþór Helgi Arnsteinsson skrifar

Í tilefni kvenréttindadagsins ræddi Vísir við Dr. Herdísi Þorgeirsdóttur, prófessor við Háskólann á Bifröst, um stöðu kvenna í stjórnum fyrirtækja. Hún segir að sú staða sem er uppi núna þar sem ungir karlmenn eru helst í framvarðasveitinni sé ekki góð og að Tengslanets-ráðstefnan Völd til kvenna hafi varað við ástandinu árið 2006.

Markmenn eiga ekki einir að stjórna leikskipulaginu
„Það þarf meiri breidd í forystuhópinn. Rödd kvenna þarf að heyrast, vegna hæfileika þeirra, getu og reynslu, sem er því miður ekki verið að nýta í ákvarðanatöku í efstu lögum,” segir Herdís. Fyrir stuttu sendi Rannsóknarsetur vinnuréttar við Háskólann á Bifröst frá sér skýrslu þar sem meðal annars kom fram að konur eru eingöngu tíu prósent allra stjórnarmanna hjá þeim ellefu fyrirtækjum sem mynda aðallista Kauphallarinnar eða eingöngu sex talsins. Herdís líkir þessari staðreynd við það að ef eingöngu markmenn frá Suður-Evrópu myndu stjórna öllu leikskipulagi í knattspyrnu.

Karlmenn hampa hverjir öðrum
Herdís segir að þrátt fyrir að hæfar konur sé að finna alls staðar innan fyrirtækjanna reynist það þrautin þyngri fyrir þær að komast í stjórnunarstöður. Herdís segir að almennt hampi karlmenn hverjir öðrum og geti í sumum tilvikum hvorki horft á konur né talað við þær nema eingöngu sem kynverur. „Það er brýn nauðsyn að opna augu fólks og knýja fram hugarfarsbreytingu til að auka jafnfrétti, hvort sem er innan fjölskyldna eða fyrirtækja.”

Ekki ástæða til að óttast lagasetningu
Herdís bendir á að konur séu að verða menntaðri en karlmenn og þær hafi ekki minni reynslu og því mikilvægt að þeim sé hleypt inn í stjórnir fyrirtækja. Hún telur að hið slæma efnahagsástand sem nú ríki gæti kallað fram hugarfarsbreytingu. Herdís nefnir einnig að lög um jöfnun kynjahlutfalla í stjórnum fyrirtækja gætu verið nauðsynleg og sér ekki hvern þau ættu að skaða.

Tengslanets-ráðstefnan varaði við þróuninni
Á Tengslanets-ráðstefnunni Völd til kvenna árið 2006, sem Herdís var í forsvari fyrir, sendi ráðstefnan frá sér ályktun um nauðsyn kynjakvóta í stjórnum fyrirtækja. Þar var varað við því að rýr hlutur kvenna í stjórnum fyrirtækja vegi ekki aðeins að jafnrétti kynjanna heldur væri slíkt ástand hættulegt íslensku efnhags- og atvinnulífi sem og samfélaginu öllu.

„Þegar við sendum frá okkur þessa ályktun urðu margir hneysklaðir en mér sýnist að hún hafi verið orð í tíma töluð. Ég er sannfærð um að jafnrétti á öllum sviðum samfélagsins er forsenda velferðar.“ Meginatriðið að mati Herdísar er að lagasetning um kynjakvóta gæti flýtt þeirri þróun sem er forsenda efnahagslegra framfara, það er að bæði kynin komi að stjórnun og mótun samfélagsins.

„Þar sem er jafnfrétti, þar er friður og farsæld,” og eru það viðeigandi orð á kvenréttindeginum sem haldinn er hátíðlegur í dag, 19. júní.

http://www.visir.is/g/2008576701759/varadi-vid-astandinu-fyrir-tveimur-arum-sidan

Fyrirlestur um upplýsingarétt í Montenegro

Fyrirlestur um upplýsingarétt í Montenegro

montenegro

Dr. Herdís Þorgeirsdóttir heldur framsöguerindi á ráðstefnu sem er haldin sameiginlega á vegum Evrópusambandsins og þings Evrópuráðsins til styrktar þjóðþingum.  Ráðstefnan fjallar um aðgengi að upplýsingum og tengsl þjóðþinga við fjölmiðla og fer fram í þinginu í Montenegro föstudaginn 6. júní.

Erindi -Herdísar fjallar um upplýsingarétt og ber yfirskriftina: “The public´s right to know, the role of the media and impact of evolving European standards in Iceland as elsewhere”.

Tengslanet IV ráðstefnan 2008

Tengslanet IV ráðstefnan 2008

CIMG1484Picture 5Umfjöllun Viðskiptablaðsins um fjölmennsustu ráðstefnu sem haldin er í íslensku atvinnulífi:

Konur eiga langt í land þegar kemur að völdum og áhrifum í samfélaginu

Ráðstefnan Tengslanet IV – Völd til kvenna hófst í gær í Háskólanum á Bifröst. Þetta er í fjórða sinn sem ráðstefnan er haldin en yfirskrift hennar í ár er „Konur og réttlæti“.

Stofnandi hennar og stjórnandi frá upphafi er dr. Herdís Þorgeirsdóttir, prófessor við lagadeild Háskólans á Bifröst. Herdís segir hugmyndina í upphafi hafa verið að skapa nýja leið í jafnréttisbaráttunni. Tengslanetið sé vettvangur fyrir þverfaglega samvinnu kvenna af öllum sviðum samfélagsins og þar séu málin rædd opinskátt en um leið hafin yfir allt pólitískt dægurþras.

„Tengslanet er orðin stærsta ráðstefnan í íslensku viðskiptalífi. Hana sækja konur á öllum aldri. Á meðal þátttakenda eru konur úr viðskiptalífinu, lögfræðingar, kennarar, leikarar, bændur og húsmæður svo eitthvað sé nefnt.“

Fyrsta ráðstefnan gekk vonum framar

Herdís segir upphafið megi rekja til ársins 2004 en þá hafði hún nýhafið störf við lagadeild Háskólans á Bifröst. Í fyrstu gekk hugmyndin út á að halda ráðstefnu fyrir kvenlögfræðinga en fljótlega varð henni ljóst að sá hópur væri of þröngt afmarkaður. Það væri líklegri leið til árangurs að hafa víðtækari skírskotun og höfða til fleiri. Á sama tíma voru stofnuð félög kvenna í ýmsum starfsstéttum, s.s. í lögmennsku, endurskoðun og hjá læknum. Herdís segist því hafa látið þau boð út ganga að ráðstefnan væri öllum opin. Fljótlega varð henni ljóst að áhuginn væri mikill því það rigndi inn skráningu í tölvupósti. Nadine Strossen, forseti bandarísku réttindasamtakanna, sem er jafnframt þekktur prófessor við lagadeild New York háskólans í Bandaríkjunum hélt erindi á fyrstu ráðstefnunni ásamt fjölda íslenskra fyrirlesara.

Mikil stemning myndaðist strax á fyrsta degi Ráðstefnan þótti takast vel og var Herdís m.a. útnefnd til verðlauna Jafnréttisráðs fyrir vikið.

„Það myndaðist svo mikil stemning á ráðstefnunni. Þarna voru konur sem voru t.d. höfuðandstæðingar úr stjórnmálum en þetta hófst einhvern veginn yfir alla flokkadrætti. Konur sameinuðust í einhverjum ákafa og gleði. Það sem m.a. hefur einkennt þessar ráðstefnur er einmitt ekkert þras, heldur miklu frekar ákveðin gleði og samstaða. Konur virðast líta á hana sem samræðugrundvöll.“

Hér má sjá dagskrá einnar fjölmennustu ráðstefnu sem haldin hefur verið í íslensku fræðasamfélagi.

Umfjöllun Viðskiptablaðsins.

Meðfylgjandi mynd tók ljósmyndarinn Ari Magg fyrir auglýsingu vegna Tengslanets-IV ráðstefnunnar.

TENGSLANET IV – Völd til kvenna

TENGSLANET IV – Völd til kvenna

  1. – 30. maí, 2008

„KONUR & RÉTTLÆTI“

 

  1. mars, 2008

Ágæta Tengslanet,

Þakka ykkur kærlega fyrir síðast og fyrir ykkar þátt í því að gera ráðstefnuna Tengslanet III – Völd til kvenna – að  fjölmennustu  ráðstefnu í íslensku viðskiptalífi árið 2006. Auðvitað átti hin heimsþekkta Germaine Greer sinn þátt í því hve aðsóknin var mikil. Það er þó fyrir ykkar tilstuðlan, sem hafið sótt tengslanets-ráðstefnurnar að þær eru vinsælustu ráðstefnur um málefni kvenna sem haldnar hafa verið á  Íslandi frá upphafi. Við höfum með okkar framlagi á tengslanets-ráðstefnunum, sem sóttar eru af konum úr öllu litrófi stjórnmála og  starfsstétta, haft umtalsverð áhrif á jafnréttisbaráttu á Íslandi.

Tengslanet IV – Völd til kvenna verður haldin 29. – 30. maí n.k. og er yfirskrift ráðstefnunnar KONUR & RÉTTLÆTI. Ráðstefnan verður með svipuðu sniði og áður: Mæting á Bifröst kl. 16 fimmtudaginn 29. maí,gengið á Grábrók eftir upphitun við rætur fjallsins; fjallræða á toppnum, stórkostleg veisla úti í guðsgrænni náttúrunni í Paradísarlaut á fimmtudagskvöldinu; röð af frábærum fyrirlestrum á föstudeginum og móttakaforseta Íslands á Bessastöðum í lok ráðstefnu.

Að venju heiðra ráðstefnuna stjörnufyrirlesarar. Judith Resnik prófessor við lagadeildina á Yale sem var útnefnd fremsti fræðimaður í lögfræði 2008 af bandarísku lögmannasamtökunum hefur vakið athygli fyrir rannsóknir sínar bæði í Bandaríkjunum og Evrópu. Hún er af mörgum talin verða næsta konan sem sest í Hæstarétt Bandaríkjanna. Sjá  meðfylgjandi mynd og ferilskrá.  Maud de Boer-Buquicchio er annar framkvæmdastjóri Evrópuráðsins og eftirsóttur fyrirlesari innan lögsögu þess sem rúmar 800 milljónir manna. Hún er glæsilegur fyrirlesari og með púlsinn á stöðu mannréttinda í Evrópu og með yfirsýn á réttarstöðu kvenna í ríkjum sambandsins en alls eru þau 46 og hefur hún heimsótt þau vel flest (http://www.coe.int/t/secretarygeneral/sga/Biography_en.asp).  Sjá meðfylgjandi mynd.

Að vanda verður einnig fjöldi íslenskra, skemmtilegra fyrirlesara og umræður í kjölfarið. Dagskrá verður send út bráðlega. Að vanda er þátttökugjaldi haldið í algeru lágmarki.   Verð fyrir þátttöku á ráðstefnunni þar sem allt er innifalið (nema gisting), þ.e. matur, drykkur og akstur eftir veislu og aftur á ráðstefnuna daginn eftir er kr. 16.500.

Með þessu bréfi viljum við benda ykkur á að gestir tengslanetsins verða sjálfir að panta gistiaðstöðu á eftirtöldum þremur hótelum í nágrenni Bifrastar og munum við sjá um að aka gestum á hótel eftir veisluna í Paradísarlaut og sækja aftur að morgni föstudagsins 1. júní. Ráðstefnan verður haldin í Hriflu, hinum glæsilega ráðstefnusal á Bifröst eins og fyrri ár. Á Bifröst verður einnig snæddur hádegisverður á veröndinni fyrir framan kaffihúsið ef vel viðrar.

Ég hef skynjað mikinn áhuga á tengslanetinu hjá konum í ýmsum fagfélögum, sem hafa komið að tengslanetinu áður; félagi kvenna í lögmennsku, í læknastétt, meðal verkfræðinga, endurskoðenda, félagi kvenna í atvinnurekstri, konum úr listalífi, starfsmönnum borgar og bæja, konum í pólitík og konum sem ég hef hitt í heita pottinum í lauginni eða á förnum vegi; konum á öllum aldri og alls staðar af landinu.

SKRÁNING fer fram á heimasíðu skólans www.bifrost.is. Aðstoðarkona mín Sonja Ýr Þorbergsdóttirmeistaranemi við lagadeildina á Bifröst svarar fyrirspurnum varðandi skráningar  en netfang hennar ersonjat@bifrost.is og gsm 661 2930.

Ég hvet ykkur til að panta ykkur gistiaðstöðu sem fyrst – eftirtalin hótel bjóða vetrarverð fyrir tveggja manna herbergi.

Kær kveðja,

Herdís Þorgeirsdóttir

 

 

 

GESTUM ER BENT Á AÐ PANTA HÓTEL Í TÍMA (sjá upplýsingar hér fyrir neðan)

Boðið er upp á gistingu á hótelum í nágrenni Bifrastar. Valið stendur á milli Hraunsnefs sem er lítið og vinalegt sveitahótel staðsett rétt hjá Bifröst;  Hótel Reykholts; Hótel Hamars sem er nýtt Icelandair hótel og stendur á milli Bifrastar og Borgarness. Afsláttur er fyrir þátttakendur Tengslanets IV.

 

SKRÁNING fer fram á heimasíðu skólans www.bifrost.is. Aðstoðarkona mín Sonja Ýr Þorbergsdóttir,meistaranemi við lagadeildina á Bifröst, svarar fyrirspurnum varðandi skráningar  en netfang hennar ersonjat@bifrost.is og gsm 661 2930.

 

  • Hótel Hamar verð með 15% afslætti:

2ja manna  herbergi með morgunverði:       12.600

 

Pantanir í síma : 433-6600 eða e-mail: hamar@icehotels.is

http://icehotels.is/

  • Hraunsnef verð með 18% afslætti:

2ja manna  herbergi með morgunverði:       9.500

Pantanir í síma: 435-0111 eða e-mail: hraunsnef@hraunsnef.is

http://hraunsnef.is/

  • Hótel Reykholt verð með 25 % afslætti:

1 manns     herbergi með morgunverði:        12.675

2ja manna  herbergi með morgunverði:       15.675

3ja manna   herbergi með morgunverði:        18.600

 

Pantanir í síma: 435-1260 eða e-mail: bokun@Fosshotel.is

 

http://www.fosshotel.is/en/hotel/fosshotel_reykholt.html

Ráðstefnugestum verður ekið á hótelin á fimmtudagskvöld eftir kvöldverðarveisluna í Paradísarlaut og þeir sóttir aftur eftir morgunverð á föstudagsmorgni til að sitja ráðstefnuna á Bifröst.